Öll námskeið byggjast í útreiðum í bland við skemmtilega kennslu í leik og starfi. Námskeiðin eru ætluð börnum á grunnskólaaldri nema annað sé tekið fram.
Námskeið 1. 11. júní – 21. Júní *
Námskeið 2. 24.júní – 5.júlí
Námskeið 3. 8.júlí – 19.júlí
Námskeið 4. 22.júlí – 2.ágúst
Námskeið 5. 6.ágúst – 16.ágúst *
* kennt laugardaginn 15.júní í stað mánudagsins 17.júní (þjóðhátíðardag íslendinga)
** kennt laugardaginn 10.ágúst í stað frídagsverslunarmanna
Stubbanámskeið
Námskeið fyrir yngstu knapana 4-5.ára (f.2014-2015) verður vikuna 15.júlí – 20.júlí. Farið verður yfir grunnatriði í hestamennsku og gerðar æfingar inn í gerði ásamt því að fara í ímynduð ferðalög upp um fjöll og firnindi þar sem margt getur orðið á vegi okkar.
Stubbanámskeið 1. 15.júlí – 19.júlí (fyrir hádegi hópur 09:00-12:00)
Stubbanámskeið 2. 15.júlí – 19.júlí (eftir hádegi hópur 13:00-16:00
Útreiðanámskeið
Boðið verður uppá útreiðahópa fyrir vel vana nemendur þar sem áhersla verður lögð á langa útreiðatúra. Allir knapar fá sinn hest og dagarnir nýttir til langra útreiðatúra, knapar ríða frá Faxabóli og taka með sér nestið til að borða á áningastöðum. Í boðið verða tvö fimm daga námskeið sem kennd eru eftir hádegi (13:00-16:00)
Við Víðidalinn eru margar fallegar útreiðaleiðir og munum við njóta náttúrunnar úr alfaraleið og félagsskapar skemmtilegra reiðfélaga og hesta.
Takmarkaður fjöldi nemenda er á námskeiðið.
Útreiðanámskeið 1. 8.júlí – 12.júlí eftir hádegi (13:00-16:00).
Útreiðanámskeið 2. 22.júlí – 26.júlí eftir hádegi (13:00-16:00).
Opnað verður fyrir skráningar á næstu dögum og munum við láta ykkur vita um leið og hægt verður að skrá, en verið er að betrumbæta skráningarformið okkar.