Útreiðarhópur – Vertu Klár – haust 2023

kr.79,000.00

Vörunúmer: Á ekki við Flokkur:

Lýsing

Faxaból býður upp á haust útreiðarnámskeið fyrir nemendur með einhverja reynslu af útreiðum (foreldrar eru velkomin með ef þau hafa reynslu af reiðtúrum) þar sem áhersla verður lögð á skemmtilega útreiðatúra.

Reiðskólinn Faxaból býður upp á haustnámskeið í hestamennsku haustið 2023. Á námskeiðinu ætlum við að kynnast fjölmörgum þáttum hestamennskunnar, svo sem umhirðu, umgengni, ásetu og taumhaldi. Við kynnumst hestunum, gerum æfingar og förum í skemmtilega útreiðartúra. Námskeiðin eru bæði fyrir börn sem og fullorðna með einhverja reynslu af hestamennsku.

Takmarkaður fjöldi nemenda er á námskeiðin. Við áskiljum okkur rétt til að sameina hópa og/eða fella niður tíma ef ekki næst næg þátttaka (að viðhöfðu samráðu við nemendur – ólíklegt að til þess komi).

Boðið er upp á námskeið á eftifarandi tímum:

  • Þriðjudaga kl. 17 – 19, í allt  10 skipti frá 29. ágúst til 31. október
  • Miðvikudaga kl. 17 – 19, í allt 10 skipti frá 30. ágúst til 1. nóvember
  • Mögulega bætast við fleiri dagar ef næg þátttaka næst

Vinsamlega veljið tíma og hóp þegar bókað er.

Takmarkaður fjöldi nemenda er á námskeiðið. Foreldrar eða forráðamenn sem vilja fara með börnunum á námskeiðið eru velkomin til að skrá sig með börnum (ef þau fullorðnu eru reiðfær og tilbúin til að fara í reiðtúra).

Sjá nánar hér

Frekari upplýsingar

Tími

Þriðjudagar kl. 17, Miðvikudagar kl. 17

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Útreiðarhópur – Vertu Klár – haust 2023”