Reiðskólinn
Hvert námskeið stendur yfir í tvær vikur, frá mánudegi til föstudags. Kennt er frá 9-12 eða 13-16. Reiðskólinn sér um að útveiga öryggishjáma, reiðtygi og góða hesta hver nemandi fær að prófa sem flesta hesta meðan á námskeiðinu stendur til að geta öðlanst meiri öryggi og þekkingu í hestamenskunni. Kennslan skiptist í verklega og bóklega kennslu. Nemendur eru beðnir um taka með sér létt nesti og klæða sig eftir veðri. Nemendur er skipt í hópa eftir getu og þekkingu og fá allir kennslu við sitt hæfi.
Hópunum er skipt niður eins og hér segir:
Byrjendahópur: Er fyrir þá sem hafa litla eða enga reynslu af hestum. Í þessum hópi læra börnin undirstöðuatriði í umgengni við hesta og reiðmennsku ásamt því að læra ásetu og stjórnun.
Framhald 1: Er fyrir þá sem hafa farið einu sinni á námskeið eða hafa aðra þekkingu af hestum, nemendur eiga að vera búnir að læra undirstöðu atriði í reiðmensku, lögð er áhersla á ásetu, stjórnun og jafnvægi einnig er farið í skemmtilega reiðtúra.
Framhald 2: Er fyrir þá sem hafa farið á tvö eða fleiri námskeið mikil áhersla er lögð á ásetu og stjórnun. Farið er í langa reiðtúra á námskeiðinu svo nemandinn verður að vera vel undirbúin.
Framhald 3: Er fyrir þá sem hafa komið 3-4 sinnum eða oftar á námskeið eða eiga jafnvek hest. Áhersla er lögð á að nemandi geti farið að sjá um sinn hest sjálfur með lítilli hjálp frá kennara einnig verður farið í gangskiptingar og langa og skemmtilega reiðtúra.
Leikjanámskeið
Reiðskólinn býður nú upp á leikjanámskeið hálfan dag á móti reiðnámskeiðunum, innifalið er heitur matur í hádeginu. Ratleikir, boltaleikir og brennómót auk þess sem farið verður í fleiri skemmtilega útileiki.
|